Mig dreymdi ógeðslega freaky draum um daginn. Hann var þannig að ég var orðin ógeðslega mikið kristin! Ég gerði ekki annað en að þakka Guði fyrir hitt og þetta og mæta í messu og þannig stuff sem ofur kristið fólk gerir. Allavegana, svo fékk ég þessa “sýn” þar sem að guð sagði mér, að hann myndi ekki svara bænum mínum, fyrr en ég losaði mig við “syndina” og ég spurði hann á einhverri asnalegri íslensku og fór að þéra hann á fullu hvað ég hefði nú gert af mér. Og hann sagði, að Móðir mín, hún Eva, hefði verið sú sem syndgaði, hún beit af forboðna eplinu og þar með syndgaði hún fyrir allar konur sem á eftir hekki kæmu, en syndin elti mig og einhvað álíka. Allavega, þá spurði ég hann hvað ég gæti gert og hann sagði að ég þyrfti að losa mig við blæðingarnar ÁN læknishanda! Og ég náttúrulega gerði það fyrsta sem mér datt í hug, og fór að svelta mig. Ef ég borðaði, þá var ég ekki einungis að svíkja sjálfan mig, heldur líka Guð. Ég léttist og léttist og á einu og hálfu ári hætti ég á blæðingum.
En ég lenti einhvernveginn í læknishöndum og var löggð inná deild. Þar fékk ég þá greiningu að ég væri með einhvað sem kallaðist “Christorexia” og var það þegar Kristnir kvennmenn sveltu sig til ófrjósemis til þess eins að fá guð til að svara bænum þeirra. Svo inná deildinni fékk ég jólafrí og fór heim til foreldra minna og þar spjallaði ég við mömmu mína, hún var líka orðin grindhoruð, ég spurði hvort að guð hefði líka talað við hana og hún játaði því. Svo á aðfangadag fórum við í messu og þar voru allar konurnar orðnar grindhoraðar og sumar grátandi því þær voru ekki komnar á áfangastað, s.s. þær voru ekki búnar að losa sig við syndina. Svo í draumnum var “Christorexia” orðin algengari en anorexia og bulimia til samans og einhvað álíka.

___________________________________

Tekið úr blogginu mínu
sex is an emotion in motion