Sko um daginn þá dreimdi mig að ég og 2 vinkonur mínar og einhver strákur vorum inn í bíl, önnur vinkona mín var að keyra (hún er nú samt ekki með bílpróf en…) og svo var hún alltaf að hlæja að hlutum sem þessi strákur sagði en ég og hin vinkona mín (við sátum í aftursætinu) heyrðum aldrey neitt.
svo allt í einu kemur rosalega brött brekka næstum lóðrétt en ekki alveg og vinkona mín byrjar að keyra upp brekkuna og allt gengur vel en hún heldur áfram að hlægja að stráknum.
svo allt í einu kemur alveg lóðréttur kafli og þar stoppar bíllinn í smá stund þar til vinkona mín setur tónlist í tækið og byrjar að syngja með þá lötrar bíllinn áfram upp lóðrétta hlutann og ég og hin vinkona mín sátum aftur í og ég var með svona ónotahroll í maganum. svo komumst við upp að lokum og þá vaknaði ég með rosalega ónotatilfinnignu í maganum.

Ég var að spá hvort að þessi draumur myndi merkja einhvað eða var þetta bara bull :S þessar vinkonur mínar hlógu rosalega þegar ég sagði þeim þetta…