ókey, sko núna er mig búið að dreima tvisvar í röð eina stelpu sem var besta vinkona mín en er það ekki lengur.

fyrsti var þannig að kærastinn hennar gaf henni barn í jólagjöf, eða þið vitið ætlaði að barna hana og láta hana verða ólétta, ég trompaðist þegar ég heyrði þetta, svo þegar hún var að reyna tala við mig þá réðst ég á hana og kyrti hana síðan með sippubandi, síðan breittist sippubandið í poka og ég faldi pokan, þetta gerðist á skólalóðinni, svo hleip ég til frænda míns og segi honum þetta, og þá erum við að labba, (ég og frændi minn)og erum svo kominn inn í hús og ég alveg hvað á ég að gera, þá er hann kominn upp á hjól og segir þetta er það sem þú átt að gera….. svo heyri ég í vekjaraklukkunni og ég vakna =/

jæja draumur nr tvö : Sama stelpan og úr fyrri drauminum er þarna með sama kærastann en hún var samt e-ð öðrvísi en vanalega, hún var í bleikum þröngum jakka og buxum og með klút um hálsin hún var hávaxnari og grennri, ég sé hana og strákinn saman og er alltaf að bögga hana og sparka í hana og íta henni, svo er hún örðin svo pirruð að hún nær í svona kaffiglerkönnu og ætlar að kasta í mig, en gerir það ekki heldur rúllar henni til mín, og vill verða vinkona mína aftur, ég alveg nei og tek glerkaffikönnuna upp og þrikki í hana þannig að hún brotnar á henni og það blæðir úr bringunni og andlitinu á henni, þá tekur hún eitt stórt glerbrtot og kastar í mig það lendir á upphandleggnum á mér og það kom rétt svo lítil skráma þá segi ég þú verður að gera betur en þetta, og ætlum að fara ráðast á hvor aðra, ….. en þáá hringdi síminn minn allt í einu og vakti mig!! -.-

ég skil ekki alveg af hverju mig er að dreyma þetta, en ég skal segja ykkur afhverju ég og hún hættum að vera vinkonur, Sko Kærastinn hennar var kærastinn minn, og þau tvö byrjuðu saman daginn eftir að ég og hann hættum saman, eftir það hef ég ekki talað við hana nér hann, =/

en haldið þið að þessir draumar mekja e-ð? :S hvað á ég að gera?

ég vil afsaka allar innsláttarvillur og stafsettningu þar sem ég er að flíta mér =)
=)