Allavega núna í nótt dreymdi mig eitthvað rugl að eitthvað illt væri að meiða mig. ég sá það ekki enda með ríglokuð augu og vaknaði svo með andfælum.

Svo dreymdi líka (nótt eða ekki í nótt man það ekki) allavega
ég var ekki viss hvort þetta var draumur eða ekki. Allavega ég var að keyra í Reykjavík með vini mínum (man ekki hverjum) rétt hjá þar sem gamli tónabær var og ég er eitthvað á 100 eða eitthvað og fer yfir á rauðu og ég bara oh shit löggan á eftir að góma mig svo kem ég að öðrum ljósum og fer líka yfir á rauðu
óviljandi en samt svo mikið yfir á rauðu ekki rétt orðið rautt.
Allavega orðin svaka stressaður þá og svona. En ég slapp og vaknaði svo. Veit einhver hvað þetta þýðir?

OG veit einhver leið til þess að losna við helvítis martraðir.

P.s. hræðilegasta martröð sem mig hefur dreymt var að ég var í tölvunni allt í einu virkaði hún ekki hreyfði eitthvað músina og út skutust gaddar úr henni. Mér blæddi og eitthvað svo kom einhver trúður og eitthvað kreisti mig allan og ég gat ekki andað!! þetta var hræðilegasta martröð sem ég man eftir!!!!!!