Mér dreymdi mjög skrítin draum í nótt. Ég var einhverstaðar í RVK með foreldrum mínum og vinum þeirra(eða einvherju fólki sem við þekktum). Altt í einu var ég komin með mjög skrýtin sjúkdóm. Það voru þyrnar farnir að vaxa útúr mér. Svona rósarrunnaþyrnar. Ég fann s.s. ekkert fyrir þyrnunum en ef þeir brotnuðu þá sveið mér alveg ógurlega eins og þegar maður stingur sig einmitt á þyrni. Á einhverjum punkti í draumnum var kallað á lækni en hann vissi ekkert hvað hægt var að gera og ákveðið var að gera ekkert til að sjá hvað myndi gerast. Svo ákváðu foreldrar mínir að fara í einhvern verslunarleiðangur með vinum sínum og þau skildu mig eina eftir.
Gæti einhver sagt mér eithvað hvað þetta gæti mögulega þýtt?