Ég lenti í viðbjóðslegum hlut í gærkvöldi, og ég er nokkuð viss um að þið eigið ekki eftir að trúa mér. Ég væri nú lítið hissa þó ef mér yrði ekki trúað ..

Ég var að fara að sofa, og ég lá á hliðinni og sneri að veggnum…
Svo finn ég að það er eins og það sé strokið laust niður bakið á mér, og svo er ég allt í einu föst! Ég gat ekki hreyft mig þó ég reyndi eins og brjálæðingur.

Það var eins og ég missti allann mátt í líkamanum. =/ Ég gat ekki einu sinni hreyft hausinn til hliðar eða neitt.. Svo losnaði ég úr þessu :S Ég veit ekki ..

Kannski er ég að verða geðveik í hausnum..