Vá hvað þetta var skrýtið, undanfarið hef ég ekkert verið á veiðum eftir kærasta og hugsað með mér að hann komi bara þegar hann kemur. En í nótt dreymdi mig að ég væri að fara til útlanda en kvöldinu áður var ég að tala við strák sem annað hvort hér eða inná irc ég man það ekki og svo kom það í ljós að hann var að fara út á sama tíma bara með annari vél.
Hann var búinn að gefa lýsingu á sér og hún hljómaði mjög vel svo við ákváðum að hittast í kaffiteríunni á Leifsstöð og vá hvað ég var með mikinn hnút í maganum, ég gat varla sofið um nóttina.
Svo þegar ég kom og hitti hann var þetta fallegasti strákur sem ég hef nokkurn tíman á ævi minni séð sem sagt fullkominn í alla staði (að mínu mati)…..en við eyddum tímanum í Leifstöð saman og virtust líka mjög vel við hvort annað en svo koma að kveðjustund og var það eins og kveðja einhvern mjög nákominn en samt höfðum við einungis þekkst í tæpa tvo tíma………
Bara furðulegur draumur.

Ella.