Um daginn fór ég í draugaleiðangur með fólki sem hefur mikin áhuga á þessu og þarna voru miðlar og svo aðrir sem ekkert finna fyrir þessu. Við byrjuðum á að fara upp á berg og þar sagði einn miðillinn okkur að þarna væri kona í kringum þrítugt sem að hefði farið fram af bjarginu. Konan var alltaf að biðja okkur um að koma með sér af þvi að hún vildi sýna okkur nákvæmlega staðinn þar sem hún fór fram af. Það var annar strákur þarna framliðinn sem að við öll könnuðumst við og hann dó ungur og í hvert skipti sem að konan bað okkur um að elta sig þá sagði hann okkur að alls ekki elta hana.

Ég er búin að vera að spá svoldið í því afhverju hann vildi ekki að við eltum hana, gæti konan hugsanlega ýtt einhverjum okkur framm af ef að við hefðum farið allveg á endann á bjarginu þar sem að hún fór fram af?

Ég veit allveg að þetta hljómar hálf asnarlega en ég er bara að spá í afhverju hann vildi ekki að við færum þarna með henni. En er einhver sem að hefur hugmynd um hvað gæti verið í gangi?