Mig vantar hjálp að ráða þennan draum ??. Það voru Vampírur að elta mig allan drauminn, þetta var eins og eltingaleikur, nema ég komst alltaf undan þeim. ´Þær voru ógeðslegar og með gráa og skítuga húð. Í lokinn sá ég strákinn sem ég er að dúllast með og hann var í göngugrind og hann hafði bara einn alvöru fót og svo var hann með gervi fót. Hann var í sjúkraþjálfun. Já svo vakna ég og draumurinn er búinn .

Hjálp endilega hvað þýða vampírur í draumi ???