Sælir hugarar.

Ég rakst fyrir tilviljun á dulspekina á huga eftir að vera að leita af draumaráðningum og fleira tengt spádómum.

Málið er að ég er að verða tvítugur í ágúst og dreymir mig rosalega mikið í nánast hverjum svefni. Hef reyndar ekki gert það upp á síðkastið, eins og það hefur sloknað á mér. En ég veit að maður dreymir alltaf þó svo að maður muni ekki eftir þeim, en það sem ég meina að það sem mig hefur dreymt man ég yfir leitt alltaf.

Draumarnir sem eru að flækjast fyrir mig upp á að taka ákvörðun í lífinu mínu er samband um bílpróf. Ég hef ekki enn tekið neina tíma í ökutíma, og hef nánast ekkert keyrt bíl.

Mig hefur oft dreymt að ég sé að keyra bíl. Og ef ég hef það rétt þá hafa allir þeir draumar verið þannig að eitthvað sé að bílnum sem ég er að keyra. Mig hefur dreymt að bíllinn hennar móður minnar sé bremsulaus, ég hef verið að keyra sportbíl á feikihraða og stýrið virkaði ekki, ég hef verið að stinga af lögguna/óþokka(man ekki alveg) og ég klessti á hús en náði að keyra aftur í burt, og svo mætti lengi telja sem er ekki alveg að kveikja á hausnum á mér núna.

Ég keypti bókina “Drauma Ráðninga Bókin Þín” “Eftir : Lady Stearn Robinson and Tom Corbett” fyrir sirka hálfu ári síðan, og hef gluggað nokkrum sinnum á orðið “Bíll” og hljómar hún svona :

"Bíll. Ef þig dreymir bíl, fer ráðningin mikið eftir atvikum. Ef bílinn var eingöngu tæki til að ferðast með, hefur draumurinn enga verulega þýðingu og því verður að taka aðrar hliðar málsins til grandgæfilegar athugunar. Ef bíllinn var á mikilli ferð mátt þú búast við að skyndilegum fréttum langt að. Sé um slys að ræða þýðir það að eitthvað, sem var glatað finnist aftur, eða bætur komi fyrir tjón. Ef vélin missi kraftinn eða bílinn verður bensínlaus þýðir það að þú verður fyrir vonbrigðum af því að þú hefur sýnt óverðugum tiltrú og eða væntumþykju. Ef þú ekur einn í bíl, (eða leigubíl) boðar það að þú munt eiga fyrir höndum þægilegt líf sagir eigin dugnaðar eða framtakssemi.

Ég hef heyrt að það sé lítið sem ekkert að marka þessa bók, þess vegna tek ég ekki mikið mark á henni og leita ég svar við þessum draumum mínum þar sem mikil pressa á mér að taka bílpróf, en þar sem ég er smá bílhræddur og fæ svona drauma hefur það stoppað mig gjörsamlega að taka það.

Endilega komið með svör fyrir mig sem hafa mikið vit af draumaráðningum.

Takk fyrir.