Ég var um daginn alveg illa þreyttur eftir vinnu svo ég ákvað að ég ætlaði að leggja mig í kannski svona klukkutíma.

Ég lagðist og lá á bakinu og var alveg að fara að sofna.

Svo heyrðist mér einhver segja “Núna ætla ég að setja smá tónlist á.” Og svo heyrði ég eitthvað svona ískur og mér fannst þetta ekkert rosalega þægilegt og ætlaði að reyna að vakna. En þá uppgötvaði ég að ég gat ekki hreyft mig og ég horfði á sjálfan mig liggjandi í rúminu en ég gat engan veginn hreyft líkama minn.

Ég varð drulluhræddur og þá allt í einu vaknaði ég og bara FOKK.

Veit einhver hvað þetta er og hefur einhver lent í þessu?
DEMENTE