Ég nenni ekki að vera með eitthvað blaður áður en ég gleymi draumnum:P

Fyrsti: Þetta er draumur sem ég er búinn að dreyma nóttina áður og held ég áður fyrir það. Það er alltaf svona að ég og vinur minn erum bara að labba í hverfinu þar sem við lifum og svo er alltaf svona eitthver tvö “corpse” á hlaupahjólum, eitt er kona og eitt var karl, sem bíða alltaf á svona “hornum” á húsum o.frv. og bregða manni þegar maður labbar framhjá horninu og elta mann svo á hlaupahjólunum sínum en þau ýta sér ekkert áfram, þetta er eins og rafmagnshlaupahjól! Svo þegar við erum búin að losna við þau þá förum við bara niðrí bæ eða eitthvað og þá koma þau aftur og bregða manni geðveikt og við hlaupum þau af okkur.

Svona heldur þetta áfram en svo kemur af og til að við sjáum hlaupahjól á hraðferð en enginn á því og við heyrum svona öskur í “corpse”-unum eins og þau eru eitthvað vonsvikin. Og í eitt skipti þegar það gerðist þá fékk ég þá hugmynd að fara að hverju götuhorni og hlaupa hratt framhjá því þannig að “corpse”-in myndu ekki geta brugðið okkur! Og þá fórum við niðrí bæ og hann var alveg venjulegur en breyttist svo umhverfið í eitthvað þröngt fátækrahverfi á köflum. Og í þessu fátækrahverfi sáum við eitthvern krakka á trampólíni í garðinum sínum og eitthverjir aðrir krakkar voru að horfa á.

En svo héldum við áfram að leita af eitthverju svona horni og svo hlupum við að einu og þegar við vorum komnir framhjá því þá sáum við “corpse”-in og þau öskruðu eitthvað á okkur (öll öskur hjá þeim voru eins og svona risaeðlu öskur or some) og við hlupum í burtu og þau á eftir okkur.

Svo hélt þetta þannig áfram og svo vaknaði ég og var náttúrulega staðráðin í að vita merkinguna í þessum draumi:P

Og þá sofnaði aftur og þá dreymdi mig að ég væri að spyrja vinkonu mína/stelpu sem ég þekki vel, hvort hún vissi hvað þessi draumur þýddi… ég man reyndar ekkert hvað hún sagði en svo kom eitthvað svona bara “svart” og byrjaði annar draumur.

Þá var ég með fjórum strákum sem eru ekkert bestu vinir mínir… einn er svona strákur sem var besti vinur minn þegar ég var 7-9/10 ára en flutti svo eitthvert, einn var eitthver sem æfði með mér fótbolta(ekki lengur)og ég tala bara við á msn, einn er vinur minn sem ég er oft með núna og sá fjórði er líka vinur minn.

En við vorum að fara á fótboltavöll (Kaplakrika, heimili FH:)) og þá voru eitthverjir strákar sem æfa með mér fótbolta þar. Við vorum bara eitthvað að tala saman og svo fattaði ég að ég var í gamalli flíspeysu sem einn þeirra sem æfir fótbolta með mér átti og stóð FH á og nafnið hans undir. Hann tók hana eitthvað og sagði eitthvað “Hey, *tölustafur* ára *?*” og faðmaði mig í gríni. (*?* = man ekki hvað hann sagði)

Svo vorum við búnir að týna einum vini mínum en okkur var alveg sama:P. Svo vildu þeir að ég kæmi með þeim í fótbolta þar sem allir sem ég var með væru að fara og ég sagði ok. Svo kom mamma eins vinar míns og spurði hvar hann væri og ég hljóp til hans og sagði honum að mamma hans væri komin að sækja hann og fór svo í fótbolta með hinum. Svo vorum við bara strax á leiðinni heim (man ekkert eftir að hafa farið í fótbolta) og þá var ég að halda á lofti í undirgöngum á leiðinni heim(sparka bolta uppí loft) og þá var að spilast blús eitthverstaðar og í hvert sinn sem ég snerti boltann þá heyrðist svona nóta á gítar, svona eins og sóló. Og þá sagði einn “Spilaðu eitthvað sóló, þetta er bara léttur blús” og ég byrjaði að halda á lofti á fullu og þá spilaðist bara gítarsóló og svo hætti ég og vaknaði:)

Plís svara, allavega við fyrsta draumnum með “corpse”-unum. :)

Pazzini