Mig dreymi í nótt að ég væri úti að labba að bera út. Klukkan 5 að morgni, svo kom einhver kona útúr dyrunum og bauð mér góðann daginn. Ég svaraði ekki, vegna þess ég heyrði ekki í henni, var með iPod í eyrunum, þannig hún sagði aftur, og ég sá munninn hreyfast, þannig ég kinkaði kolli, rétti henni blaðið, og hélt leið minni áfram.

Ég man meira að segja lagið sem ég var að hlusta á: My Other Big Brother - Dikta.

Það var nýbyrjað, og þar sem ég elska Dikta fannst mér þetta flott. Allt í einu finn ég stingandi sársauka í bakið, veit ekkert hvað hefur gerst, lít við, og sé konuna standa með stóran eldhúshníf, og blóð á honum.

Þá hafði honum stungið honum ofaní bakið á mér, og vá, þvílíkur sársauki.

Þá vaknaði ég við vekjaraklukkuna (kominn tími til að bera út) og ég var enn ekki viss hvað hafði gerst. Og ég þreyfa á bakinu á mér, ég er aumur, þannig ég kíkir á rúmið, og liggja ekki bara heyrnatólin mín þarna, sofnaði með þau á eyrunum, og hafa færst undir mig og stungist í mig.

Pffff.
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið