Ok mig hefur dreymt þennan draum nokkrum sinnum, eða reyndar 2 eða þrisvar og langar að fá að vita hvað hann þýðir.

Það er allt mjög dimmt en þó svo að maður sjái eitthvað smá. Draumurinn er eiginlega bara þannig að ég er að hrapa allan tímann og sé ekki í endann eða neitt, sé reyndar klett við hliðiná mér sem ég fer niður með á ofsahraða.

Þegar ég vakna svo er ég með eitthvað í maganum eins og þegar maður er að fara að gera eitthvað mjög kjánalegt jafnvel heimskulegt, næstum eins og þegar maður er á leiðinni í Backflip pallinn á snjóbretti í eitt af fyrstu skiptunum sínum sem maður reynir það.

Get ekki sagt að maður hrökkvi upp úr draumnum en hann endar hratt, bregður pínu þegar maður vaknar upp og fattar að maður er bara í rúminu..

Veit einhver hvað þetta gæti þýtt?
A man with dyslexia walks into a bra.