mér dreymdi í nótt fremur “geðfeldan” draum.

Þannig var að ég var að kitla bestu vinkonu mína og hún lamdi (óvart) í nabblalokkinn minn(er sumsé með gat). Ég meiddi mig ekkert..en nokkru síðar leit ég á magan minn og þá hafði rifnað lítið gat (1 cm í þvermál sirka)við hliðina á nabblanum,það blæddi ekkert, en ég sá í mér inniflin, öll meltingarfærin í klessu. öll gráleit og ógeðsleg.
Við fórum uppásjúkrahús og ég var sett á skurðarborðið til að loka gatinu…ég var alltaf að kíkja á þetta. Síðan var ég svæfð…síðan vaknaði ég.

Ég hélt þá að þetta hefði verið alvöru og kíkti á nabblan á mér..sem var auðvitað alltílagi, fattaði þá að þetta hefði verið draumur..en núna kem ég þessu ekki úr huganum á mér..mér finnst alltaf eins og gatið sé þarna og mér klæjar útum allt við að hugsa um þetta(þetta var sko ógeeðslegt).
Hvernig á ég að geta hætt að hugsa um þetta..hjálp
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?