Ég var að velta fyrir mér hvort einhver vissi hvað þýddi að dreyma að einhver sé brenndur á höndum.?
Mig dreymdi um daginn að ég hitt strák sem ég hef ekki hitt í 2-3 ár og ég heilsaði honum og spurði hvernig gengi og eitthvað svoleiðis, hann snéri sér að mér og þá sá ég að hann var allur brenndur á báðum höndunum alveg upp á olnbogum.

Og eins ef einhver vissi hvort það meint eitthvað að einhver væri að syngja fyrir mann og þá líka um mann.
Málið er það að ég er nýlega fluttur úr landi og mig dreymdi að litla systir mín (13 ára ) væri að syngja fyrir mig og var að syngja um hvað það væri gott að eiga mig fyrir bróðir og eitthvað svoleiðis. Og ég hágrét allan tíman sem hún söng. Þetta gæti verið bara af því að ég er nýlega fluttur úr landi en það væri samt gaman að vita hvort þetta meinti eitthvað.
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.