Það er eitt mjög furðulegt sem ég er farin að vera soldið hjátrúarfull með: Sko, ef einhvern dreymir nafnið mitt sem byrjar á A, þá er það mjög gott nema einhver með þessu nafni snúi baki við dreymandanum. Ég hef átt tvö löng sambönd um ævina…eða næstum 3 ár í hvoru og báða dreymdi þá að ég sneri baki við þeim í þeirra draumi. Hvað ef ég kynnist einhverjum og hann dreymir þetta líka? Á ég tafarlaust að hætta með honum því ég muni vita að þetta endist ekki….því annað væri tímasóun?

Þessi sambönd eru´bæði löngu búin og ég ætla að vara þann næsta við þessu, að ef hann dreymi þetta þá skyldum við hætta saman….eða hvað???????? Sóa einhverjum tíma í að bíða og sjá…ég veit að þetta hljómar mjög ýkt en ég er farin að trúa þessu, “Allt er þegar þrennt er” og svo er þetta þriðja samband einhverntímann….skyldi það þá endast eða mun fjórða samband endast?

Það væri gott ef einhver ætti sniðugt svar við þessu því ég er MJÖÖÖÖG FORVITIN ;)