Nú hefur mig dreymt þrjar nætur í röð að tennurnar hreinlega mölbrotni út úr munninum á mér.Ég reyni að grípa tannbrotin, en þau leysast upp í höndunum á mér. Ég vakna alltaf í svitabaði með öran hjartslátt og draumurinn situr í mér margar klukkustundir á eftir.

Þar sem ég hef ekki draumaráðningabók í fórum mínum þætti mér vænt um að einhver gæti ráðið þetta fyrir mig, ég er hreinlega hrædd við að fara að sofa aftur!