Mig vantar hjálp við að ráðan þennan draum!!.
Byrjaði á því að: ég og yfirmaðurinn minn vorum “kærustupar” í draumnum, við vorum nývöknuð en ég þóttist vera sofandi en hann var að reyna að vekja mig með því að kyssa mig á munninn en ég kyssti ekki á móti. Hann var ólmur í mig og hrifin af mér í draumnum. Mér leið eitthvað óþægilega í draumnum.Í raunveruleikanum: Þessi yfirmaður minn er 4 árum eldri en ég, hann er alger daðrari og það leynist í honum perri. Hann er alltaf glápandi á mann og horfandi eftir mér og svoleiðis.. en þegar við erum að tala saman þá er hann alltaf með þetta “augnkontakt” geðveikt óþæginlegt starir í augun á manni gjörsamlega. En ja ég fatta ekki afhverju mig dreymdi þennan viðbjóðslega draum, mér finnst þessi gaur ógeðslegur PERRI!.