Mig hefur dreymt það eiginlega í hverri viku síðan seint í janúar, og svo dreymdi mig þetta líka reglulega fyrir svona ári en svo hætti það og er byrjað aftur núna, allavega þá er draumurinn svona:

Ég er að labba niður svona tröppur (ekki alveg stiga bara svona fáar, breiðar tröppur eins og eru stundum fyrir framan hús) og þegar ég er kominn í 4-6 tröppu er eins og tröppurnar sem ég er að fara að stíga á hrynji undan mér og ég dett niður í næsta skrefi, og þegar ég fell horfi ég upp og þá er svona eins og tröppurnar hafi verið ofan á þaki á mjög hárri byggingu, en það eru engir gluggar á “byggingunni”, heldur er “byggingin” bara dökk steypa…
Og svo vakna ég =/
Draumurin er frekar stuttur ef það skiptir einhverju.

Veit einhver hvað þetta þýðir?
Chuck Norris is the reason why Waldo is hiding.