Ég náði í á torrent í morgunn dáleiðslu disk frá Sailesh. Fyrir þá sem ekki vita er Sailesh dávaldur sem heimsótti Ísland fyrir stuttu. Það var hægt að hlusta á hann reyna að fá mann til að hætta að reykja, losna við sársauka, Langa til að byggja líkaman betur upp og fleira.


Alla vega ég ákvað að hlusta á Train body builder og setti headfóninn á mig og lagðist upp í rúm. Ég leit á Windows media player og sá að þetta myndi taka 18 min. ég er ekki þolinmóðasta manneskja í heiminum og var ekki að nenna að liggja í 18 min og hlusta á eitthvern kall að tala, en mér langaði að prófa. Hann byrjaði að tala um að hann hefði ekkert á móti mér og hefði einga ástæðu til að fá mig út í eitthvað slæmt. Hann talaði líka um að ég yrði afslappaðari eftir hvert orð og ég gæti ekki hætt að hlusta þótt að ég vildi. Eftir þennan hluta taldi hann niður frá 5 og sagði nokkur orð á milli talna. Eftir þetta sagði hann að ég ætlaði að fara í ræktina, skokka eða hreyfa mig á hverjum deigi og ég ætlaði að fá flottari líkama. Eftir niðurtalningu datt ég nokkrum sinnum alveg út úr heiminum en rumskaði aðeins við mér við kipp í vinstra hnénu.


Eftir þetta fór ég á msn að tala við min minn sem var líka að prófa þetta hann fanst eins og að líkamshlutarnir sínir hefðu verið þungir, en ekki mér. Hann fann fyrir löngun til að fara í ræktina en ekki mér. En samt fékk hann kippi í hnéð eins og ég. En eftir þetta leið mér mjög vel og fannst eins og ég hefði bara hlustað í 1-2 min. Ég fór að pæla hvort að dáleiðslan hefði virkað en langaði samt að prófa aftur.


Ég setti af stað Memory improvement sem var 19 min. Aftur byrjaði dávaldurinn að tala um að hann hefði einga ástæðu fyrir að gera eitthvað slæmt. Hann talaði um þetta í nokkurn tíma get samt ekki sagt hvað lengi því að ég missti allt tímaskin í báðum dáleiðslunum:/, en eftir smá tíma byrjaði gæjinn að telja niður frá 5.

6 tímum seinna vaknaði ég í rúminnu hennar múttu og hún sagði að ég þyrfti að vakna. Ég varð alveg brjálaður og sagði afhverju ertu að vekja mig svona snemma. Hún sagði að ég þyrfti að koma að borða. Ég sagði við hana að ég væri búinn að borða hádeigismat og vildi sofa lengur. En þá sagði mamma að það væri kvöldmatur! Þá allt í einu mundi ég að ég hefði verið að dáleiða mig en mundi samt ekkert hvernig ég komst í rúmið hennar mömmu eða hvað hafði gerst eftir dáleiðsluna eða eftir niðurtalninguna. Ég rauk fram og leit á eldhúsklukkuna sem var með stóra vísirinn á 12 og þann litla á 7.


Ég fór út um kvöldið og allt í einu þegar ég var að labba leit ég inn í rúðunna á bíl, ég veit ekki afhverju en ég fékk rosalega löngun til að fara að skokka.


Fyrir dáleiðsluna hafði ég sofið sirka 10 tíma seinustu 4 daga og var náttúrulega að deyja úr þreitu. Þá fór ég að pæla hvort að ég væri ekki nógu mótækilegur fyrir dáleiðslu út af þreitu?

Afhverju ég hafi ekki sofnað yfir fyrri dáleiðslunni?

Hvernig ég hefði komist inn í herbergi hjá mömmu og afhverju ég hafði farið þangað ?

Hvort ég hefði verið dáleiddur án þess að taka eftir því ?

Eða hvort að Sailesh Gæjinn væri bara eitt stórt plott !!!


En þrátt fyrir þessar pælingar líður mér mjög vel og slappar mikið af við að hlusta á hann tala.


En meiginástæðan fyrir því að ég eiddi tíma í að skrifa þessa grein er að ég vildi fá svör hvort að ég hafi farið í Trance. Eða útskýra svona hvernig þetta virkar.



Kristinn Á. Þórsson