ég er bara úti með vinum mínum þegar það myndast svona rauð þoka og með þessari rauðu þoku koma ger af flugum, eg fór strax inn þegar þokan kom. ég veit ekki hvernig flugur þetta voru en sumar voru á stærð við hunda. þær réðust á fólk og þetta var einhverskonar plága. Svo seinna í draumnum þá voru komar flugur á stærð við fólk, ógeðslegar, feitar flugur. En það var samt allt í lagi. ég var bara inni í rólegheitum og var samt svolítið hræddur. ég vaknaði um 2:21 um nóttina.

Þetta var martröð en samt var ég ekki neitt virkilega hræddur þegar ég vaknaði. ef einhver getur ráðið draumin, endilega svara.

kv.
Sin