Ég Hef lengi vel verið með mikinn áhuga fyrir draugum og tilveru þeirra. Ég trúi, því ég hef fundið fyrir óeðlilegum og óútskýranlegum reynslum. En þó ekki nóg, ég vil meira.. Ég vil verða svo hræddur að ég á ekki eftir að sofa að minsta kosti sólahring. Mér datt í hug að leita þá uppi. Ég hef fylgst með Most haunted á stöð 2 undanfarið og fengu þau mig til þess að íhuga að gera það sama hér á Íslandi, vonandi með stuðningi félaga og almennings. Ef eitthvað verður úr þessu þá gerist það ekki fyrr en í sumar, en málið er að staðir sem reimleika er vart eru takmarkaðir svo langt sem ég veit. Ef einhver hefur hugmynd um staði þá væri ekkert jafn gott og að fá að heyra frá þeim. Ég er tilbúinn að leggja ýmislegt á mig til að finna fyrir einhverju óútskýranlegu.
lærðu að læra og kenndu svo það sem þú kannt