Mig dreymdi ég að ég væri að halda partý fyrir nokkrar vinkonur mínar. Ég var e-ð hálf slöpp svo ég tók því bara rólega. Fór inn í eldhús, sem var samt ekkert eldhúsið heima hjá mér.

Þar höfðu öll glös sem höfðu verið í skápnum verið sett á gólfið og í staðinn hafði fullt af böngsum verið troðið þangað inn.
Mér fannst þetta strax frekar skrýtið og kallaði á eina vinkonu mína og spurði hvort hún vissi hvað væri eiginlega í gangi. Hún vissi ekkert um það og fór bara aftur inn í stofu til stelpnanna.

Ég byrjaði að taka upp glösin og setja þau í vaskinn svo þau myndu nú ekki brotna þarna á gólfinu.
Allt í einu var e-r/e-ð þarna sem greip í mig og byrjaði að henda mér til og frá.
Ég sá ekkert hver/hvað þetta var, það var bara eins og ég væri í teygju, hentist svona til, og ég gat ekki kallað á neinn því kallið var bara fast í hálsinum á mér

..og þá vaknaði ég! og gat ekki sofnað í langan tíma eftir það, þorði því ekki!

E-rjar hugmyndir um hvað þetta gæti mögulega þýtt??
Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll?