Ég veit ekki hvort að mig var að dreyma svona skrýtin draum vegna þess að ég var búin að borða of mikið nammi og vinna of mikið og þyrfti að slaka á eða bara vegna þess að hann þýðir eitthvað….
En ef ég tengi hann aðeins við mitt daglega líf þá var ég að hafa áhyggjur af hálku í gærkvöldi þegar ég var að keyra:S….
Allavega! ég skal segja drauminn:

Okei, ég er semsagt með bróður mínum og ég var að spjalla eitthvað við hann um hluti sem ég tala ekki um við hin systkini mín, og það er reyndar líka oftast þannig. Svo erum við eitthvað að fylgjast með umferðinni út, og það var nótt og mikill snjór og bílar voru að klessa á hvern annan útí eitt.
Svo fæ ég sms frá einhverjum strák sem ég þekki ekki neitt en hann sagðist hafa séð mig vinna og langaði að hitta mig og vinir hans líka. Og svo komu bara hann og einn vinur hans og þeir hétu Siggi og Valli (þekki enga Sigga og Valla og aldrei séð þessa stráka áður) og Siggi kom og knúsaði mig og þá varð bróðir minn pirraður og ýtti honum í burtu og svo vaknaði ég:S

Já.. Mig dreymir reyndar oft eitthvað sem tengist deginum á undan eða eitthvað. Eins og í gær var ég náttúrlega að vinna og svo var ég að keyra heim og var eitthvað að spá hvort væri hálka eða ekki og ég var að keyra um kvöldið… Svo var ég um daginn að tala við bróður minn um stuff sem ég tala yfirleitt aldrei um við neina í fjölskyldunni… Svo var ég reyndar að tala við einn strák í gær sem heitir Siggi en það var allt annar strákur.. En þessi Valli kemur alveg át of ðe blú.

En jæja sérfræðingar.. ef það er eitthvað að marka þetta hvað haldiði að þetta þýði? Að ég sé bara desperate og kvíðin.