Jæjja …
mig er búið að dreyma trekk í trekk að ég sé ófrísk og meðgangan er alltaf svo rosalega auðveld að mér finnst eins og ég hafi misst af henni.
Finn ekki barnið sparka eða neitt og er eiginlega með enga kúlu eða neitt svoleiðis, og ég er alltaf viss um að barnið fæðist langt eftir tímann og eitthvað.
Svo fæðist barnið á réttum tíma og það er aldrei neitt mál. bara “blúbbs” og komið :P
Þetta er strákur og ég veit alltaf hvað hann heitir (alltaf sama nafn, en ég segi það ekki hér)
Svo líður mér alltaf eins og mamma sé að reyna að stela honum frá mér og ég vakna alltaf gegt sad.

Þetta eru aðalatriðin, dreymi auðvitað ekkert alltaf það sama, en þetta eru alltaf aðalatriðin.
Ég er eiginlega of hrædd um að ég sé að verða ólétt þannig ég hefði ekkert á móti því að fá ykkar álit á hvað þetta þýðir.
Lífið er gáta …. Lausnin er aftaná