Mig vatnar draumaráðningu.
Málið er að mig hefur undanfarið dreymt 3 drauma sem eru mjög táknrænir en samt mér óskiljanlegir.

1 draumur, dreymi hann 1 nótt árins
Mig dreymir að ég sé að versla mjólk, í búðinni sé ég hvar pelar eru til sölu og ákveð að kaupa 3 pela.
Þegar ég kem að búðarborðinu segir afgreiðslukonan að pelarnir kosti 3000 kr saman, mér fannst þetta frekar dýrt en kaupi þá samt. þarna endar draumurinn.

2 draumur. þessi draumur kom 7 jan, viku eftir 1 drauminn

Ég er í litilli hverfisverslun og kaupi niðurskornar melónur, vatnsmelónur ( rauðar að innan) ég kaupi 3 báta, innpakkaða. Þegar ég er að keyra burtu tek ég eftir því að hverfið er aftur orðið eins og það var fyrir nokkrum árum, s.s ekki búið að byggja allstaðra þar sem er byggð núna, mér verður litið á autt svæði ( eru hús þar í dag) og segi þarna mun ég búa.

3 draumur. þessi draumur kom 14 jan

Ég er á hosteli, í næsta herbergi við mig er ungur maður af erlendubergi, ég er að taka óléttu prufu, sem verður jákvæð. Ungi maðurinn kemur inn til mín og segist hafa gefið mér þetta barn, en það meigi ekki gefa upp að hann sé faðirinn. Ég brosi og segi að hann þurfi ekki að óttast þaðmuni ég ekki gera. Í draumnum hugsa ég um leið og ég segji þetta, en hann er ekki pabbinn, heldur annar maður.
Um leið og þessi hugsun er búin í draumnum segir hann við mig, þau verða þá 3 börnin þetta ár.
Nú segi ég bara búin að vera iðinn og brosi.
Hann já það kemur 1 í sept, 1 í okt og 1 í nóv.

mér þætti gaman að vita hvort einhver getur ráðið þennan draum, því mér finnst það mjög táknrænt að dreyma 3 drauma þar sem talan 3 kemur svona oft fram.

ps.
ég dreymdi draum akkurat viku eftir 3 drauminn þar sem talan 2 kom fram, eins og 1 atburðurinn væri þegar liðinn eða komin af þessum 3 atburðum að ég held aðmunu gerast. Fékk svo þær fréttir í dag að vinkona mín er ólétt.