Halló.
Ég veit ekki alveg hvort þetta sé rétti staðurinn fyrir þetta, en veit bara ekki hvar ég ætti að setja þetta annars staðar.
Ég er með sár í líflínunni í lófanum. Þetta er í annað skipti sem að ég fæ sár þar og síðast gerðist frekar óskemmtilegur persónulegur atburður.
Einsog í fyrra skiptið þá hef ég ekki hugmynd um hvernig ég fékk sárið. Auðvitað er maður alltaf að fá sár og tekur ekki mikið eftir því en, afþví að þetta er nákvæmlega í líflínunni þá fór ég að hugsa. Er þetta bara rugl í mér eða gæti verið einhver tenging þarna á milli? Vitið þið um einhverja hjátrú sem tengist þessu?