Mig dreymdi um daginn að ég væri í flugvél með mömmu og litlu systir minni. Allt í einu segir flugfreyjan að við eigum að búa okkur undir svolitla ókyrrð og svo… vúúhm! Flugvélin hrapar eins og henni væri sleppt úr loftinu og ekki svona nose-dive eins og maður myndi halda heldur var hún alveg lárétt og hún hrapar rosalega hratt og ég sé alveg jörðina koma á móti mér en ég er rosalega róleg. Aðallega það sem ég hef áhyggjur af er litla systir mín. Svo svona metra áður en við skellum á jörðina nær flugvélin að rétta sig af. Þetta var rosalega skrítið og ég var svona að pæla í hvort einvherjum detti í hug hvað þetta gæti þýtt, svona einhver undirmeðvitund eða eikkað??
'It's gonna be AWESOME!' - Barney Stinson