Ég ákvað að skella mér í partý um áramótin og hafði þar áfengi við hönd. Ég hef alltaf verið næmur og sérstaklega undir áhrifum. Einhvern tíman um nóttina sat ég í hornsófa og var að spjalla við strák og ég fann að það var mikið af fólki í kringum okkur. Oftast þegar ég finn fyrir návist einhvers tárast ég og á erfitt um andardrátt. Síðan finnst mér eins og eitthvað segi mér að setjast í hornið á sófanum. Ég heyrði ekkert, mér bara fannst eins og ég ætti að setjast þar. Loks gefst ég upp og sest í hornið. Ég hélt að ég ætlaði að kafna og augun að drukkna, þetta var svo rosalega óþægilegt. Ég færði mig aftur en þetta hélt áfram. Alltaf fannst mér eins og ég ætti að sitja í horninu.
Einhver sem hefur hugmynd um hvað var í gangi?