Tákn ?!... Jæja góðir hálsar…. ég hef ekki gert þetta áður en ég bara verð að fá annara álit á þetta.

Ég var að taka mig til í háttinn, bursta og eikkað og af einhverri ástæðu fór ég að skoða tunguna mína. Þá sá ég að á tungunni minni var einsog í skornir hefðu verið Tölustafurinn 4 og bókstafurinn C. (sjá mynd)
Og ofan á þetta hef ég því að bæta að á Þorlaksmessu var ég með Pabba mínum í Kirkju hérna rétt fyiri utan bæinn (eikkað að stússast í rafmagninu) og þar sat ég inni í kirkjunni og beið. Af einhverjum ástæðum fór ég að tala við Guð… spurja hann hvort hann væri til og eikkað; einsog margir hafa eflaust gert. Og ég bað hann um að senda mér tákn ! hvað sem er… bara eitthvað til að sýna mér að hann væri þarna, virkilega. og viti menn nokkrum dögum seinna…


Tákn Eða Tilviljun ?!
-[! Never Under Estimate The Way You Live Your Life !]-