Allt í lagi, í gærnótt dreymdi mig eftirfarandi:

Ég stóð úti á götu, og strákur sem ég þekki frekar vel, sem býr úti í englandi reyndar (er enskur og allt) stóð beint á móti mér. Það var nótt. Hann heldur á stóru pappaspjaldi og penna, og snýr sér svo við, og skrifar eitthvað á spjaldið.
Svo snýr hann sér að mér og sýnir mér á spjaldið og þar stendur með stórum rauðum stöfum “LOLA?” og ég heiti ekki lola þannig að.. en já mig langar bara að vita hvort þetta hafi einhverja merkingu, og ég þekki enga sem heitir lola heldur.
Could I Wham! my Oingo Boingo into your Velvet Underground?