Mjög skritín draumur mig dreymdi það að ég væri orðin unglingur aftur og vínkona mín sem ég kynntist í fjölbrautarskóla væri þarna en ég hætti í þessum skóla þegar ég var níu ára. Allir voru að drekka viskí en við kölluðum það jungle in the vep. Svo var einhver þarna sem auglísti það í útvarpinu. Þá birtist víkingasveit lögreglunar því þeir héldu að þetta væri nýtt ólöglegt efni á markaðinum en þetta endaði í götustríði meira að segja var herinn kominn með skriðdreka og þyrlur út um allt. En ég og vínkona mín hlupum heim til afa en þar var enginn heima. En það komu eitthvað af stráka skaranum á eftir okku en við sögðum að við mættum ekki hleypa neinum þangað inn þar sem við værum að bíða eftir afa og synum hans fimm. En við skriðum undir sófa því það var svo mikið ljós af sprengjukúlunum að við fengum of birtu í augun. þar vaknaði ég.