Rosalega var þetta skrýtinn daumur sem mig dreymdi í nótt!!!!!

Ég var á leið til Akureyrar þar sem ég verð í alvöru næstu 3 vetur í gistihúsi með skólanum. Mig dreymdi að ég væri að halda á litlu frænku minni sem er frá Sri Lanka (bara hún er 16 ára í dag) og við vorum villtar á Akureyri. Það kom leigubíll að okkur þar sem ég hélt á henni sofandi og hann bauðst til að finna gistiheimilið með okkur því ég mundi ekki heimilisfangið. Svo loks kannaðist ég við húsið og ég fór úr bílnum með frænku mína í fanginu. Ég þurfti svo mikið að pissa að ég gat varla haldið í mér og settist niður fyrir framan dyrnar. Grimmdarleg kona opnaði, en þegar hún sá að ég gat ekki staðið upp (því ég þurti svo mikið að pissa) lokaði hún og hélt að við ættum ekkert erindi. Ég bankaði aftur og fór inn.
Allt var mjög ljótt þarna inni og gamaldags í móbrúnum og -grænum litum og gamlir karlar sátu á sófanum, bóndalegir sóðar sem ræsktu sig og hræktu á gólfið. Þarna voru óþekkir krakkar.
Ég fór og leitaði að klósetti en sá að ég var búin að pissa á mig!!!!! Og ég gleymdi aukafötum í Reykjavík…ÓNEIIII
Ég leitaði að fötum í einhverju herbergi. Allt í einu kom lítil stelpa inn og henni brá að sjá mig í engum buxum. ´Þarna inni var mikið af leikföngum og ég spurði hana hvort þetta væri hennar herbergi. “Nei, pabbi minn á það” sagði hún.
Hún fann pínulitlar nærbuxur sem ég tróð mér í…en hvað gat ég svo farið í? Ekki gat ég farið fram á nærbuxunum!
Hún lét mig fá pínulítinn dúkkukjól og spurði hvort ég gæti troðið mér í hann. Ég hló og sagði neiiii heldurðu að ég komist í þennan? Þarna endaði draumurinn og þetta var stelpa úr frönskum þætti sem ég sá í gær…ég var að tekna þessa litlu stelpu eftir sjónvarpinu og man því andlitið mjög skýrt.

ENDIR