Ég hef tekið eftir því stundum að ég virðist finna á mér hluti sem gerast svo. Tildæmis þá var ég úti á menningarnótt og þurfti að fara fyrr heim en vinir mínir. En sirka klukkan 12:30 fann ég allt í einu á mér að strákur og stelpa sem voru með hefðu kyssts og var það rétt hjá mér. Einnig fann ég á mér að einn bekkjarfélagi minn yrði ekki fyrstu dagana í skólanum og reyndist það aftur rétt hjá mér. Svo núna síðast þá var ég að labba heim og fékk þessa tilfinningu um að eitthvað leiðinlegt hefði gerst og ég tengdi það við stjúpbróðir minn sem ætlaði í heimsókn til mín. Ég var ekki fyrr kominn heim en það var hringt og mér sagt að hann kæmist ekki. Svo fæ ég stundum hroll og líður illa á sumum stöðum þar sem fólk hefur dáið.

Hljómar eflaust ótrúverðugt en ég fæ bara þessa tilfinningu um að ég viti það.