Mig dreymdi að ég hefði sofnað með linsurnar og vaknað við það að ég sá RAUTT!!!! Ég fór fram á klósett, hélt auganu galopnu og sá alla hvítuna blóðuga og blóðdropa renna inn í augnlitinn. Þetta var svo raunverulegt í draumnum nema það að augað var risastórt ens og spegillinn væri stórt stækkunargler…ég sá ekki sjálfa mig í speglinum, bara augað. Svo man ég að í draumnum sneri ég mér hrædd frá speglinum og sagði “Ónei, ég er að blindast!!!!!!!!!!!”

Rosalega var ég fegin að vakna fljótt eftir þetta, ekki með linsur í augunum og allt í lagi með augnhvítuna. :) SJÚKK!¨!!!!