Sæl veriði.Þessi grein fjallar um Jesú Krist og ef þú villt ekki lesa þá skaltu hætta eða lesa seinna.
Nýja testamentið er gefið til að fagnaðarerindið um son Guðs birtist fyrir alla menn og konur.
Fagnaðarerindið um Jesú Krist gefur manni von um eilíft samfélag við hinn eingetna son Guðs,Jesú Krist.
Þetta samfélag er EKKI hægt að vinna sér inn með verkum.
Það er gefið af náð Guðs fyrir alla þá sem trúa á Jesú Krist.
Jesús Kristur kom til þess að boða Guðs ríki,sem er meira en allt jarðneskt og það tilheyrir Guði og allir sem í það koma tilheyra Jesú Kristi.
Maður getur ekki unnið íg inn í Guðs ríki heldur aðeins tekið við trú á Jesú Krist og þannig orðið hólpinn. Jesús Kristur tók á sig synd heimsins til þess að þeir sem trúa geti fengið fyrirgefningu synda sinna og gengið inn í samfélag Guðs.
Jesús Kristur er eina leiðin til föðurinns.
Þakkir til Guðs og drottinns vor Jesú Krist sem er frelsari heimsins að eilífu amen.
Hafðu það gott og megi Guð blessa þig og fjölskyldu.
p.s.hér er nafn á heimasíðu sem gæti verið áhugaverð fyrir suma…
www.jesus-is-lord.com