ég lenti í svolitlu óhugnalegu um daginn.. þetta var nóttina fyrir afmælið mitt og ég var fárveik og allir gestirnir farnir heim sem höfðu verið í matarboði hjá mér um kvöldið, og ég var lögst uppí rúm og var farin að dotta. Svo “vaknaði” ég skyndilega við læti frammi, en það var samt ekki eins og ég væri vakandi, ég var meira eins og milli svefns og vöku. Ég bý bara á einni hæð en samt voru læti frammi í eldhúsi eins og eitthver væri að hlaupa upp og niður stiga aftur og aftur og einhver annar að fikta í skápunum frammi og leika sér með pottana og skella skápunum. Svo tók ég eftir eins og eitthver stæði í herbergis dyrunum hjjá mér,en ég gat ekki hreyft mig, og ég sá bara veruna svona útundan mér. Allt í einu birtist hún standandi yfir mér, svo rétti hún hendurnar yfir mig, og hún var svona fölgrænleit , það var það eina sem ég man eftir af henni.. svo byrjaði hún að draga eitthvað útúr mér, svo ég dróst öll saman en gat ekki gert neitt, sama hvað ég reyndi að öskra og rétta úr mér. Ég herptist bara öll það til að allt í einu þá skelltist ég aftur í rúmið og var glað vakandi og sveitt.

ég hef veriða ð pæla rosalega í því hvað þetta var. Hvort þetta hafi bara verið ótrúlega raunverulegur draumur eða eitthvað annað?