Hæ mig dreymdi draum í gær nótt. Mér fannst ég horfa á konu reita af sér hringa af höndunum. Það voru allskonar hringir, gull með steinum, silfur með steinum og gull og silfur. Hún skildi eftir 2 hringa á vinstri hönd og einn á hægri. Ég fattaði síðan að þetta er kona sem ég þekki, en hún var breytt, hárið á henni var ofurstutt og mér fannst hún bæði hafa stækkað og grennst.