Mig dreymdi að ég hefði stigið á fullt af litlum glerbrotum. Ég settist niður og týndi þau úr, en eitt hafði stungist mjög djúpt inn í hælinn á mér og ég þurfti að nota flísatöng til að draga það úr. Það var ekkert blóð, ekkert sár. Bara svona smá “dæld” eftir brotið.
Síðan ég vaknaði þá hef ég ekki getað hætt að hugsa um þetta. Skrítin tilfinning.
Veit einhver hvað þetta gæti þýtt?