OK… þessi draumur er dáldið skrítinn og mig hefur dreymt hann nokkuð oft, en hann er alltaf með sömu persónunum og alltaf gerist það sama… :S Var að spá í hvort þið gætuð ráðið hann ;)

Ok það var eitt mjög skrítið við þennan draum að mig dreymdi hann á ensku :S…
Ég var ásamt annarri stelpu í fangelsi… eða eitthvað álíka og við vorum að þrífa. Þegar við vorum búnar að þrífa var okkur “skipað” að fara í þann tíma sem við áttum að vera í. Ég átti að vera í líkamsrækt eða spinning eða eitthvað álíka og þar var þessi ógeðslega flotti fangavörður, sem var “the instructer” og ég bað hann um að fá að skipta um föt, og hann greip í mig á leiðinni og sagði: komdu aftur. Ég fór inn í herbergið mitt sem var útbúið helstu þægindum og var litið inn í skáp (eða geymslu) þar sá ég nokkurs konar helgiathöfn, fólk í dökkum fötum, humma eitthvað og ég sá að þau voru að drepa einhvað/hvern. Ég var skiljanlega ógeðslega hrædd og hljóp til sæta fangavarðarins sem brá nokkuð. Við töluðum saman um þetta og ég bað hann um að aðgæta hvort það væri eitthvað þarna. Þegar við komum inn var skáphurðin lokuð, ég fór að gráta, en alltaf stóð hann hjá mér, hélt utan um mig og huggaði mig. Ég var í sjokki og skalf öll, það var dálítið skrítið. En ég sá þetta fólk alltaf aftur og aftur og hljóp alltaf til sæta fangavarðarins ;) Og hann huggaði mig alltaf. Síðan þegar ég sá þetta fólk einu sinni hljóp ég til hans og hann huggaði mig að venju og síðan kyssti mig, það varð eitthvað mikið úr því og við byrjuðum bara saman. Ég var búin a ðkvarta nokkuð oft í stjórnina en aldrei var neitt gert í því. Síðan kom aðalkallinn sem réði öllu og hótaði að hann myndi henda me´r út úr fangelsinu eða láta flytja mig ef ég hætti ekki að kvarta. Og ég hætti að kvarta. Ég og sæti fangavörðurinn sukkum í þetta og vorum alltaf saman, þegar ég sá þetta hélt hann fast utan um mig og huggaði mig. Það var svona hughreystandi að vera með honum. En ég man ekki meir… því miður, en geriði það a ðráða drauminn, því þaðer dálitið skritið að dreyma á ensku ;)