Mig dreymir oft sömu draumana aftur og aftur og veit að það er verið að segja mér eitthvað en bara sé ekki hvað það er.

Annar draumurinn er að ég er með lausar tennur eða að þær detti, mér líður alltaf illa í draumnum og dreymir þetta mjög oft.

Hinn draumurinn er að ég er að máta hárkollur eða að lita á mér hárið og þá er alltaf voða gaman hjá mér og ég rosalega ánægð með útlitið, dreymir þetta oft líka…

Getur einhver sagt mér hvað þetta gæti þýtt?