Hæhæ

Áður en ég segi frá þessum draum, langar mig að útskýra smá sem tengist draumnum. Ég fer í útileigu á hverju ári með fullt af fólki + foreldrum mínum, og þar er svona vatn eða á eða eitthvað svoleiðis.

En draumurinn var þannig…

Að ég fór í þessa árlegu útileigu með foreldrum mínum, og svo var góður vinur minn þarna, sem ég er búin að vera hrifin af í svolítinn tíma, með okkur líka.

Svo voru allir bara eitthvað að spjalla saman þarna, vinur minn var í fótbolta með nokkrum krökkum sem voru þarna líka, og allt í einu fæ ég boltann beint í hausinn. Vinur minn kemur og biðst afsökunnar, ég þykist vera geðveikt fúl, en svo fer ég allt í einu að kítla hann (ég vissi sko að hann væri geðveikt “kítlinn”). Þá tók hann mig upp, semsagt hélt á mér, og fór að vatninu sem er þarna og henti mér ofan í. Ég fór alveg á bólakaf og svo allt í einu kom ég uppúr og fór að hósta, svona eins og þegar það hrekkur ofan í mann. Hann horfði á mig og spurði hvort það væri ekki allt í lagi, og ég sketti á hann vatni, þannig að hann blotnaði líka. Svo stökk hann útí vatnið og við fórum að slást. Svo ákváðum við að synda þarna úr því að við vorum hvort sem er orðin rennandi blaut, og svo þegar við vorum búin að synda í smá stund, stoppuðum við og kysstumst. (tek það fram að við erum bara vinir)

Þýðir þetta eitthvað eða er þetta bara einhver svona bull draumur?

Kveðja AichaLady
Some past just can not be forgotten…