Nú er það þannig, að hér heima drekkum við mikið af Trópí í svona Fernum, lítrafernum, kaupum yfirleitt 2-3 fernur og allt fer í hundana ;) ef það gleymist…það eru allir háðir því…núna í gærnótt dreymdi mig hinsvegar eftirfarandi draum…

Ég geng inn í eldhús og opna ísskápinn, lít inn og sé engan trópí…kalla í mömmu…

“GLeymdis að kaupa Trópí?”
“Neinei, ég keypt nokkrar fernur, þær eru neðarlega…”

Lít aftur inn og sé þá að það er heil hilla troðin með Trópí, en alveg fremst er ein ferna af Ananastrópí.

Við kaupum alltaf bara appelsínu trópí, þannig að þetta var frekar undarlegt…

Það sem vakti þó furðu mína var að þessi ferna af ananastrópí var með gati framaná og þaðan lak trópíinn niður á gólfið…

Þá vaknaði ég.

Þessi draumur vakti bara furðu mína, svolítið svona…sérstakur..mjög skýr og öll svona…Merki, eða þannig…voru mjög greinileg…litir og allt..

Einhverjar hugmyndir?
Hvað er þetta Undirskrift pósta?