Systur minni dreymdi ansi skrítinn draum um mig. Málið var að ég kom heim til hennar alveg rosalega horaður og veiklulegur, eins og ég hefði verið í útrýmingabúðum. Ég var allur bólginn og lemstraður í kringum munnin og hún bað um að fá að sjá uppí mig. Allar tennurnar voru heilar og hvítar en það voru þrjár risastórar holur á skrítnum stöðum í gómnum þar sem voru að koma niður nýjar tennur. Hún spurði af hverju ég hefði ekki farið til tannlæknis og ég fór að hágráta og sagðist ekki eiga pening og væri svo svangur af því ég ætti ekki efni á mat eða neinu. Ég hélt áfram að hágráta og hún gat ekkert gert til að hugga mig nema gefa mér að borða.

Jæja, hvað segið þið um þetta?