Ég fann engann betri stað til að setja þetta á, þannig að…

Ég man drauminn ekki allveg ljóst, en ég ætla allaveganna að reyna að útskýra hann og vill fá álit ykkar.
Mig dreymdi að ég væri einhver kona (ég er í raunveruleikanum strákur) og það var einhver lítil stelpa sem var með mér.
Ég gaf henni blóm í blómakrukku, en það var víst snákur í henni (sem hvorugt okkar vissi um).
Undir lokin á draumnum, þá var snákurinn búinn að bíta blómið, sem visnaði, og stökk uppúr blómakrukkunni og beit mig í hælinn.

Já, þetta er mjög skrýtið einhvað, en ég yrði mjög ánægður ef þið gætuð ef til vill sagt mér hvað þetta þýddi (þið sem vitið einhvað um draumaráðningar)