Mig dreymir oft að ég sé að fljúga og þá er ég yfirleitt eina manneskjan í draumnum sem get flogið og ég nýt þess hvað allir horfa og dást að mér. Stundum er ég líka eins og ég sé að fljúga list-flug þ.e. er að dansa í lausu lofti, fer í hringi og geri allskonar dúllur. Hvað ætli þetta merki?

Ég man líka að þegar ég var krakki þá hlakkaði mig alltaf til að fara að sofa svo ég gæti farið að dreyma.

Gaman væri að fá álit ykkar . .
_

Kveðja,
Nornin