ég er ekki skyggn,
því miður/sem betur fer?
ég er þess í stað mjööööög næm..
það hefur alltaf hrætt mig svolítið!
þegar ég kem við axlirnar á fólki, þá líður mér öðruvísi.. eiginlega alveg eins og viðkomandi axlareigandi :| :P
ég var að hugga vin minn sem átti mjög erfitt,
var að missa náinn ástvin,
ég þekkti ekki viðkomandi, en ég strauk hendinni eftir öxlunum hans, og mér leið eins og hjartað mitt væri að kremjast, og fór að hágráta!
ég grét og grét.. það næstum fór þannig að hann þurfti að hugga mig :s
Þetta er ekki eina dæmið samt..

svo er það þannig að ef ég hugsa til ákveðinnar manneskju, sama hver það er.. þá snertir viðkomandi líf mitt á einhvern hátt næstu daga..
Þetta gerist samt ekki samkvæmt pöntunum.. því miður.. þá þyrfti ég ekki síma.. :P

ég veit að það eru fleiri svona..
mig langar að heyra frá þeim ;)

kv. Ellena með stóra hjartað.. :s
Ekkert sem ég skrifa er í samhengi ?