Hjálp
mig dreymdi draum en ég man hann ekki allan en mig vantar að vita er það er einhver þarna úti sem getur hjálpað mér að ráða hann. Það sem ég man af honum er að ég stóð fyrir framan eins konar upplýsingatöflu ég sá ekkert hvað á henni stóð þó að ég væri að lesa á hana. Að mér komu nokkrar konur og byrjuðu að skamma mig og sögðu að ég ætti refsingu skillið fyrir það sem ég hefði gert þeim og í draumum vissi ég að ég átti refsingu skilið og barðist ekkert á móti þeim. Allt í einu dró ein konan upp hníf og sagði mér að rétt hendurnar fram og ég gerði það þá skar hún á handleggina að innanverðu rétt við olbogabótina. Ég fann það þegar hún skar og ég fann það líka þegar blóðið byrjaði að renna úr sárinu ég gerði ekki neitt heldur gekk yfir til stráka sem voru það og bað þá um að hjálpa mér en á meðan öllu þessu gekk þá var ég sallaróleg
svo var draumurinn búinn
öll hjálp vel þegin