Hefur einhver lent i þessu eða hefur skoðun á því??


Ég var 14 ára og var að horfa á video spólu með mömmu minni,
Við vorum ein heima um kvöld. Ég stökk upp á klóið og hafði ekki hugmynd um hvað mamma ætlaði sér, Ég kem niður stigann og stoppa þar því eg sé mömmu í eldhúsinu blanda kakó og segi EKKI GANGA FRÁ ÉG ÆTLA AÐ FÁ MÉR LIKA!. Svo fer ég niður inn í eldhús og þá er hún horfin ég stend þar stjarfur og segi MAMMA!. Þá svaraði hún mér inn í stofu með kakó í hendi sér.

Hvernig stenst þetta??